Mantas týndur og ekki meira með

Mantas Mockevicius í leik með Keflavík.
Mantas Mockevicius í leik með Keflavík. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Litháinn Mantas Mockevicius, sem hefur leikið með Keflavík á tímabilinu, hefur ekkert mætt á æfingar síðustu daga og svarar ekki símtölum Keflvíkinga. Þetta segir Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari Keflavíkur, í samtali við Vísi í dag. 

Mockevicius átti góða spretti með Keflavík og skoraði 5,2 stig, tók tvö fráköst og gaf tæpar tvær stoðsendingar að meðaltali í leik. Hann lék tíu leiki og skoraði mest ellefu stig í leik. 

„Ef þú finnur Mantas þá máttu endilega láta mig vita. Hann hefur ekki mætt og það næst ekkert í hann þannig að hann verður ekki meira með,“ sagði Sverrir í samtali við Vísi í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert