Fjörið í úrslitakeppninni heldur áfram í kvöld

KR-ingurinn Pavel Ermolinskij sækir að körfu Keflvíkinga.
KR-ingurinn Pavel Ermolinskij sækir að körfu Keflvíkinga. mbl.is/Hari

Úrslitakeppni Dominos-deildar karla í körfuknattleik heldur áfram í kvöld en tveir leikir fara fram í átta liða úrslitunum.

Íslandsmeistarar KR-inga fá Keflvíkinga í heimsókn en KR hafði betur í fyrstu rimmu liðanna í Keflavík á föstudagskvöldið í æsispennandi leik 77:76.

Í Þorlákshöfn taka Þórsarar á móti Tindastóli en Stólarnir eru 1:0 yfir í einvíginu eftir sigur í fyrsta leiknum á föstudagskvöldið 112:105.

Báðir leikir kvöldsins hefjast klukkan 19.15 og verða þeir í beinni textalýsingu hér á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert