Fjölnir í úrvalsdeildina

Dovydas Strasunskas úr Fjölni með boltann en Everage Richardson úr …
Dovydas Strasunskas úr Fjölni með boltann en Everage Richardson úr Hamri reynir að stöðva hann. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fjölnismenn úr Grafarvogi tryggðu sér í kvöld sæti í úrvalsdeild karla í körfuknattleik með því að vinna fjórða úrslitaleik umspilsins gegn Hamri en hann fór fram í Hveragerði og lauk 109:90, Fjölni í vil.

Fjölnir, sem var með 2:1 forskot eftir sigur á heimavelli í þriðja leiknum, var yfir 29:23 eftir fyrsta leikhluta og 54:48 í hálfleik. Eftir þriðja leikhluta stóð 83:68 og Grafarvogsbúar sigldu sigrinum örugglega í höfn á lokasprettinum.

Það eru því Fjölnir og Þór frá Akureyri sem koma í stað Skallagríms og Breiðabliks í úrvalsdeildinni á næsta tímabili.

Srdan Stojanovic skoraði 24 stig fyrir Fjölni, Marques Oliver 24 og Vilhjálmur Theodór Jónsson 21. Þá skoraði Róbert Sigurðsson 17 stig og átti 14 stoðsendingar.

Everage Lee Richardson skoraði 25 stig fyrir Hamar og Julian Rajic 18.

Hamar - Fjölnir 90:109

Hveragerði, 1. deild karla, 15. apríl 2019.

Gangur leiksins:: 2:7, 7:16, 19:24, 23:29, 24:31, 35:41, 43:49, 48:54, 53:58, 61:67, 64:77, 68:83, 74:89, 79:95, 87:105, 90:109.

Hamar: Everage Lee Richardson 25/4 fráköst/10 stoðsendingar, Julian Rajic 18, Oddur Ólafsson 15, Ragnar Jósef Ragnarsson 15, Dovydas Strasunskas 6/6 fráköst, Kristófer Gíslason 6, Florijan Jovanov 5.

Fráköst: 13 í vörn, 7 í sókn.

Fjölnir: Srdan Stojanovic 24/4 fráköst, Marques Oliver 24/15 fráköst/7 stoðsendingar/3 varin skot, Vilhjálmur Theodór Jónsson 21, Róbert Sigurðsson 17/7 fráköst/15 stoðsendingar, Andrés Kristleifsson 13/9 fráköst, Rafn Kristján Kristjánsson 7, Egill Agnar Októsson 3.

Fráköst: 23 í vörn, 15 í sókn.

Dómarar: Davíð Tómas Tómasson, Einar Þór Skarphéðinsson, Johann Gudmundsson.

Áhorfendur: 225.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert