Pétur Rúnar og fleiri framlengja við Stólana

Pétur Rúnar Birgisson.
Pétur Rúnar Birgisson. mbl.is/Hari

Körfuboltamaðurinn Pétur Rúnar Birgisson hefur framlengt samning við Tindastól sem og nokkrir af lykilmönnum liðsins.

Frá þessu er greint á facebook-síðu Tindastóls í dag. Pétur Rúnar hefur verið í stóru hlutverki með Tindastóls-liðinu undanfarin ár og þessi tíðindi að Pétur Rúnar ætla að halda kyrru fyrir í Skagafirðinum ættu að kæta stuðningsmenn Stólanna.

Þá hafa þeir Viðar Ágústsson, fyrirliðinn Helgi Rafn Viggósson, Friðrik Þór Stefánsson, Axel Kárason, Hannes Másson og Örvar Freyr Harðarson allir framlengt samninga sína við Tindastól.

Eins og fram á dögunum hefur Brynjar Þór Björnsson rift samningi sínum við Stólanna og þá bárust af því í gærkvöld að Isra­el Mart­in er hættur sem þjálfari liðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert