Hrafn fór með Álftanes upp um deild

Þorgeir Kristinn Blöndal var stigahæstur hjá Álftanesi.
Þorgeir Kristinn Blöndal var stigahæstur hjá Álftanesi. mbl.is/Árni Sæberg

Karlalið Álftanes í körfuknattleik leikur í næstefstu deild á næsta keppnistímabili eftir sigur á Skagamönnum 123:100. Hrafn Kristjánsson sem vann titla með KR og Stjörnunni stýrir liði Álftanes. 

Þorgeir Kristinn Blöndal var stigahæstur hjá Álftanesi með 26 stig en hann lék áður með KR og Val. Kjartan Atli Kjartansson, sem varð bikarmeistari með Stjörnunni á sínum tíma og er þekktari sem fjölmiðlamaður í seinni tíð, er ekki dauður úr öllum æðum og skoraði 25 stig en hann er uppalinn á Álftanesi. 

Arnór Smári Bjarnason var stigahæstur hjá ÍA með 26 stig og Jerome Cheadle skoraði 21 stig. 

Hrafn Kristjánsson þjálfar nú Álftanes.
Hrafn Kristjánsson þjálfar nú Álftanes. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert