Portland 2:0 yfir gegn Oklahoma

Damian Lillard kominn framhjá Dennis Schröder og Russell Westbrook í …
Damian Lillard kominn framhjá Dennis Schröder og Russell Westbrook í nótt. AFP

Portland Trail Blazers er 2:0 yfir gegn Oklahoma City Thunder í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfuknattleik eftir sigur í nótt 114:94. Tveir fyrstu leikirnir voru á heimavelli Portland í Arizonaríki. 

CJ McCollum skoraði 33 stig og Damian Lillard 29 stig fyrir Portland en hjá Oklahoma var Paul George stigahæstur með 27 stig. Russell Westbrook skoraði 14 stig sem er ekki mikið á hans mælikvarða en gaf 11 stoðsendingar. 

Allir þrír leikirnir í nótt unnust á heimavelli. Toronto Raptors og Danver Nuggets jöfnuðu metin í sínum rimmum eftir að hafa tapað fyrsta leik á heimavelli. Toronto vann Orlando 111:82 og Denver vann San Antonio 114:105. 

Kawhi Leonard fór á kostum hjá Toronto og skoraði 37 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert