Dagur og félagar í úrslitakeppnina

Dagur Kár Jónsson
Dagur Kár Jónsson mbl.is/Eggert Jóhannesson

Dagur Kár Jónsson var sterkur fyrir Flyers Wels í 90:79-útisigri á Vienna Timberwolves á útivelli í austurrísku A-deildinni í körfubolta í dag. Með sigrinum tryggði Flyers Wels sér sæti í sex liða úrslitakeppni. 

Dagur skoraði 13 stig, tók 7 fráköst og gaf 4 stoðsendingar fyrir sitt lið á rúmum hálftíma. Flyers Wels er í fimmta sæti deildarinnar með 38 stig, þegar ein umferð er eftir.

Flyers Wels er búið að vera á fínni siglingu síðustu vikur og unnið sex af síðustu átta leikjum sínum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert