Hjalti Þór ráðinn þjálfari Keflavíkur

Hjalti Þór Vilhjálmsson.
Hjalti Þór Vilhjálmsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hjalti Þór Vilhjálmsson hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs Keflavíkur í körfuknattleik og tekur hann við starfi Sverris Þórs Sverrissonar. Þetta kemur fram á karfan.is.

Hjalti var í vetur aðstoðarþjálfari Íslandsmeistara KR og var þar Inga Þór Steinþórssyni til trausts og halds. Finnur Jónsson, fyrrverandi þjálfari karlaliðs Skallagríms, verður aðstoðarmaður Hjalta með Keflavíkurliðið.

Sverrir Þór tók við liði Keflavíkur af Friðriki Rúnarssyni í fyrra eftir að hafa þjálfað kvennalið félagsins í tvö ár. Vegna aukinna umsvifa á öðrum vettvangi getur hann ekki haldið áfram með liðið að því er fram kemur á karfan.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert