Penninn á lofti í Keflavík

Hörður Axel Vilhjálmsson leikur undir stjórn bróður síns á næsta …
Hörður Axel Vilhjálmsson leikur undir stjórn bróður síns á næsta tímabili. mbl.is/Árni Sæberg

Keflavík hefur staðfest að fjórir leikmenn liðsins munu vera áfram í herbúðum þess á næsta tímabili á Íslandsmótinu í körfuknattleik.

Þetta eru þeir Magnús Már Traustason, Ágúst Orrason og Hörður Axel Vilhjálmsson. Einnig er þar um að ræða Guðmund Jónsson, sem fer reyndar í aðgerð í byrjun næsta mánaðar en stefnir á að vera klár fyrir mót.

Fréttirnar koma daginn eftir að Hjalti Þór Vilhjálmsson, bróðir Harðar Axels, var ráðinn þjálfari liðsins í stað Sverris Þórs Sverrissonar sem lét af störfum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert