Missir af fyrstu úrslitaleikjunum

Kevin Durant.
Kevin Durant. AFP

Meistararnir í Golden State Warriors koma til með að spila án stórstjörnunnar Kevins Durants í fyrstu leikjunum í úrslitunum um NBA-meistaratitilinn í körfuknattleik.

Durant glímir við meiðsli í kálfa og hefur ekki spilað síðustu fimm leiki Golden State í úrslitakeppninni. Það hefur þó ekki komið að sök því meistarar síðustu tveggja ára eru komnir í úrslitarimmuna eftir að hafa unnið Portland Trail Blazers í undanúrslitunum 4:0.

Golden State vonast til þess að Durant snúi til baka þegar líður á úrslitaeinvígið en þar mætir liðið annaðhvort Milwaukee eða Toronto.  Milwaukee vann fimmtu viðureign liðanna síðastliðna nótt og er einum sigri frá því að komast í úrslitin um meistaratitilinn í fyrsta sinn í sögu félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert