Árni ráðinn þjálfari Tindastóls

Árni Eggert Harðarson handsalar samninginn við Stólana.
Árni Eggert Harðarson handsalar samninginn við Stólana. Ljósmynd/Tindastóll

Árni Eggert Harðarson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Tindastóls í körfuknattleik til næstu tveggja ára en frá þessu er greint á facebook-síðu körfuknattleiksdeildar Tindastóls.

Árni hefur áður þjálfað kvennalið Breiðabliks, karlalið Vængja Júpíters ásamt því að vera aðstoðarþjálfari meistaraflokks ÍR í Dominos-deild karla síðustu ár.

Tindastóll hafnaði í 6. og næst neðsta sæti í 1. deildinni á síðustu leiktíð undir stjórn Arnoldas Kuncaitis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert