Bayern vann fyrsta leikinn

Martin Hermannsson.
Martin Hermannsson. Ljósmynd/FIBA

Martin Hermannsson og samherjar í Alba Berlín misstu niður forskot á lokamínútunum í fyrsta úrslitaleiknum gegn Bayern München um þýska meistaratitilinn í körfuknattleik í München í dag. 

Bayern sigraði 74:70 og er því 1:0 yfir en vinna þarf þrjá leiki til að verða Þýskalandsmeistari. Næsti leikur liðanna verður í hinni glæsilegu Mercedes Benz höll í Berlín en Bæjarar fengu gríðarlegan stuðning á áhorfendapöllunum í dag. 

Alba Berlín var átta stigum yfir þegar rúmar fjórar mínútur voru eftir af leiknum og fimm stigum yfir þegar tvær og hálf voru eftir en lokakaflinn fór illa hjá Berlínarbúum.

Martin skoraði 5 stig í leiknum og hitti úr tveimur af sex skotum sínum. Hann gaf auk þess þrjár stoðsendingar á samherja sína, tók 4 fráköst og stal boltanum tvívegis. 

Bayern er ríkjandi meistari en sömu lið mættust í úrslitum fyrir ári síðan en þá var Martin ekki kominn í raðir Alba.  

Alba Berlín varð síðast meistari árið 2008 en hefur þrívegis tapað úrslitarimmu eftir það: 2011, 2014 og 2018.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert