Þrír grískir bræður í NBA-deildinni

Giannis Antetokounmpo er stjarna hjá Milwaukee Bucks.
Giannis Antetokounmpo er stjarna hjá Milwaukee Bucks. AFP

Þrír grískir bræður, Giannis, Thanasis og Kostas Antetokounmpo, munu að líkindum allir leika í NBA-deildinni í körfuknattleik næsta vetur.

Giannis er stjarna í deildinni eftir frammistöðu sína með Milwaukee á undanförnum árum. Bræður hans hafa nú báðir skipt um lið. Thanasis, sem er landsliðsmaður og hefur verið hjá stórliðinu Panathinaikos, verður samherji Giannis hjá Milwaukee.

Þá hefur LA Lakers tryggt sér krafta Kostas, þess yngsta, en hann kom lítillega við sögu hjá Dallas síðasta vetur.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert