Ísak orðinn alþjóðadómari

Ísak Ernir Kristinsson hlustar á Pavel Ermolinskij.
Ísak Ernir Kristinsson hlustar á Pavel Ermolinskij. mbl.is/Kristinn Magnússon

„FIBA, Alþjóða körfuknattleikssambandið, gaf út á dögunum lista yfir alþjóðadómara og eftirlitsmenn fyrir tímabilið 2019 til 2021. Þar eru tveir nýir fulltrúar KKÍ á lista en það eru þeir Ísak Ernir Kristinsson sem dómari og Jón Bender sem eftirlitsmaður.

Dómaranefndir körfuknattleikssambanda innan FIBA tilnefna dómara og eftirlitsmenn á listann, sem FIBA fer svo yfir og samþykkir eða hafnar. Báðar tillögur KKÍ til FIBA voru samþykktar.

Á dómaralista KKÍ hjá FIBA eru áfram þeir Aðalsteinn Hjartarson, Davíð Tómas Tómasson og Jóhannes Páll Friðriksson. Rúnar Birgir Gíslason er áfram eftirlitsmaður og Kristinn Óskarsson er áfram alþjóðlegur dómaraleiðbeinandi.

Annað hvert ár fá aðildarþjóðir FIBA pláss fyrir ákveðinn fjölda dómara og eftirlitsmanna út frá árangri landsliða og félagsliða í alþjóðlegum keppnum. 

KKÍ óskar nýliðunum tveimur sérstaklega til hamingju með alþjóðlegu vottunina og sjálfsögðu einnig þeim voru á listanum áður," segir í yfirlýsingu KKÍ í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert