Haukar fá Þórsara í heimsókn

Kári Jónsson og liðsfélagar hans í Haukum fá Þór frá …
Kári Jónsson og liðsfélagar hans í Haukum fá Þór frá Þorlákshöfn í heimsókn. mbl.is/Hari

Úrvalsdeildarlið Hauka og Þórs frá Þorlákshöfn mætast í 32-liða úrslitum bikarkeppni karla í körfuknattleik, Geysisbikarnum, en dregið var í 32-liða úrslit keppninnar í höfuðstöðvum ÍSÍ í Laugardalnum í dag.

Alls voru 26 lið skráð til leiks og því var dregið í tíu viðureignir í drættinum. Sex lið munu því sitja hjá í 32-liða úslitunum og koma beint inn í 16-liða úrslitin. Það eru Fjölnir, Ármann, Valur, KR, Stjarnan og Vestri. Leikirnir fara fram dagana 2.-4. nóvember

Viðureignirnar má sjá hér fyrir neðan.

KR B - Álftanes
Höttur - Njarðvík
Hamar - Grindavík
Selfoss - Tindastóll
Þór Akureyri B - Keflavík
Breiðablik - ÍR
Skallagrímur - Sindri
Reynir Sandgerði - ÍA
Haukar - Þór Þorlákshöfn
Snæfell - Þór Akureyri

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert