Nýliðarnir skotnir niður á jörðina fyrir austan fjall

Everage Lee Richardson, til hægri, er í lykilhlutverki hjá Hamarsmönnum.
Everage Lee Richardson, til hægri, er í lykilhlutverki hjá Hamarsmönnum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hamar lék nýliðana frá Álftanesi grátt í annarri umferð 1. deildar karla í körfuknattleik þegar liðin mættust í Hveragerði í gærkvöld. 

Hamarsmenn unnu stórsigur, 104:70, en Álftnesingar höfðu byrjað tímabilið á stórum sigri á liði Skallagríms sem lék í úrvalsdeildinni í fyrra. Everage Lee Richardson var í aðalhluti hjá Hamarsmönnum og skoraði 34 stig.

Höttur lék sinn fyrsta leik og vann Sindra frá Hornafirði í Austurlandsslag á Egilsstöðum, 84:76, og Selfoss sigraði Snæfell örugglega, 74:59. Í fyrrakvöld unnu Blikar auðveldan útisigur á Skallagrími, 97:67, og eru með 4 stig á toppnum ásamt Hamarsmönnum.

Höttur - Sindri 84:76

VHE-höllin Egilsstöðum, 1. deild karla, 11. október 2019.

Gangur leiksins:: 11:4, 18:13, 22:13, 30:15, 34:24, 39:29, 45:35, 49:41, 51:47, 57:52, 65:55, 72:62, 77:69, 79:73, 82:73, 84:76.

Höttur: Marcus Jermaine Van 20/13 fráköst/5 stoðsendingar/4 varin skot, Matej Karlovic 18/7 fráköst, Dino Stipcic 15/7 fráköst/9 stoðsendingar, Eysteinn Bjarni Ævarsson 14/15 fráköst, Ásmundur Hrafn Magnússon 9, David Guardia Ramos 5, Brynjar Snær Grétarsson 3.

Fráköst: 34 í vörn, 11 í sókn.

Sindri: Ignas Dauksys 22/7 fráköst, Andrée Fares Michelsson 13/4 fráköst, Arnar Geir Líndal 12, Stefan Knezevic 11/11 fráköst, Gísli Þórarinn Hallsson 9, Eric Benedick 7, Árni Birgir Þorvarðarson 2/5 fráköst.

Fráköst: 29 í vörn, 6 í sókn.

Dómarar: Sigurður Jónsson, Birgir Örn Hjörvarsson.

Hamar - Álftanes 104:70

Hveragerði, 1. deild karla, 11. október 2019.

Gangur leiksins:: 4:6, 6:8, 11:14, 14:20, 21:27, 26:27, 35:30, 43:32, 48:34, 55:36, 68:46, 72:50, 78:52, 85:58, 97:63, 104:70.

Hamar: Everage Lee Richardson 34/8 fráköst, Toni Jelenkovic 16/7 stoðsendingar, Pálmi Geir Jónsson 11/5 fráköst, Björn Ásgeir Ásgeirsson 10, Danero Thomas 9/7 fráköst, Ragnar Jósef Ragnarsson 9, Bjarni Rúnar Lárusson 4, Geir Elías Úlfur Helgason 3, Hlynur Snær Wiium Stefánsson 3, Arnar Daðason 3, Kinu Rochford 2/7 fráköst.

Fráköst: 30 í vörn, 7 í sókn.

Álftanes: Samuel Prescott Jr. 21/7 fráköst, Vilhjálmur Kári Jensson 14/4 fráköst, Birgir Björn Pétursson 11/5 fráköst, Þorgeir Kristinn Blöndal 8, Grímkell Orri Sigurþórsson 7, Brynjar Magnús Friðriksson 5/9 fráköst, Þorsteinn Finnbogason 3/4 fráköst, Unnsteinn Rúnar Kárason 1.

Fráköst: 26 í vörn, 9 í sókn.

Dómarar: Gunnlaugur Briem, Helgi Jónsson.

Selfoss - Snæfell 75:59

Vallaskóli, 1. deild karla, 11. október 2019.

Gangur leiksins:: 7:6, 7:10, 14:16, 18:20, 23:24, 31:26, 34:31, 42:31, 44:35, 48:41, 54:46, 58:50, 65:52, 68:55, 71:56, 75:59.

Selfoss: Rhys Sundimalt 14, Christian Cunningham 13/21 fráköst/5 stoðsendingar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert