Körfuknattleikssamband Íslands hefur boðað til fréttamannafundar í hádeginu á morgun vegna ráðningar á þjálfara fyrir karlalandsliðið.
Samningur Kanadamannsins Craig Pedersen rennur út um áramótin en hann hefur stýrt landsliðinu frá árinu 2014. Undir hans stjórn komst Ísland tvisvar sinnum í lokakeppni Evrópumótsins.
Ísland náði ekki að tryggja sér sæti í undankeppni Evrópumótsins eftir slæmt tap á móti Sviss í forkeppninni í ágúst en næsta verkefni landsliðsins hefst í febrúar þegar það hefur þátttöku í forkeppni heimsmeistaramótsins.