Þórir lætur meira til sín taka

Þórir Guðmundur Þorbjarnarson.
Þórir Guðmundur Þorbjarnarson. mbl.is/Árni Sæberg

U-20 ára landsliðsmaðurinn Þórir Guðmundur Þorbjarnarson er farinn að láta meira að sér kveða í bandaríska háskólakörfuboltanum, NCAA. Þórir er á sínum þriðja vetri hjá Nebraska sem er með sterkt lið. 

Skoraði hann 12 stig í síðasta leik gegn Creighton en Nebraska tapaði 95:76 á útivelli. Í leiknum þar á undan mætti Nebraska hinu kunna liði Georgia Tech á útivelli og tapaði 73:56. Þá skoraði Þórir 11 stig, tók 7 fráköst og varði skot. Hefur hann skorað 6 stig að meðaltali í vetur og er því að bæta í.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert