Keflvíkingurinn skoraði mest í Manchester

Sara Rún Hinriksdóttir í landsleik í síðasta mánuði.
Sara Rún Hinriksdóttir í landsleik í síðasta mánuði. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Sara Rún Hinriksdóttir var stigahæst í liði Leicester Riders er liðið mátti þola 68:73-tap fyrir Manchester Mystics í bresku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag. 

Keflvíkingurinn skoraði 18 stig, tók fimm fráköst og gaf eina stoðsendingu, en hún spilaði tæpar 35 mínútur.

Sara hefur skorað 15,7 stig, tekið sex fráköst og gefið 1,7 stoðsendingar að meðaltali í leik á tímabilinu. Liðið er í þriðja sæti deildarinnar með tíu stig eftir sex leiki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert