Landsliðskona gerir það gott á Englandi

Sara Rún í leiknum í gær.
Sara Rún í leiknum í gær. Ljósmynd/http://www.wbbl.org.uk/

Leicester Riders vann 74:68-sigur á Sheffield Hatters á heimavelli í bresku A-deildinni í körfubolta í kvöld. Sara Rún Hinriksdóttir átti góðan leik fyrir Leicester, annan daginn í röð. 

Sara skoraði 18 stig í 68:73-tapi fyr­ir Manchester Mystics í gær og í dag skoraði Keflvíkingurinn 19 stig og tók 4 fráköst.

Leicester-liðið er í fimmta sæti deildarinnar með sex sigra og tvö töp í átta leikjum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert