Helena íþróttamaður ársins hjá Val

Helena Sverrisdóttir er íþróttamaður ársins 2019 hjá Val.
Helena Sverrisdóttir er íþróttamaður ársins 2019 hjá Val. Ljósmynd/Þorsteinn Ólafs

Körfuknattleikskonan Helena Sverrisdóttir var í dag valin íþróttamaður Vals árið 2019. Helena átti risastóran þátt í að Valur vann þrefalt á árinu.

Valskonur urðu deilda- bikar og Íslandsmeistarar á síðustu leiktíð í fyrsta skipti. Helena gekk í raðir Vals á miðju síðasta tímabili og voru Valskonur óstöðvandi eftir komu hennar. 

Helena hefur lengi verið fremsta körfuknattleikskona landsins og er mikilvægur hlekkur í íslenska landsliðinu. Valskonur í toppsæti Dominos-deildarinnar með 22 stig eftir 13 leiki. 

Helena Sverrisdóttir er íþróttamaður Vals árið 2019.
Helena Sverrisdóttir er íþróttamaður Vals árið 2019. Ljósmynd/Þorsteinn Ólafs
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert