Bryant meira en bara körfuboltamaður

Kobe Bryant var einn besti körfuboltamaður allra tíma.
Kobe Bryant var einn besti körfuboltamaður allra tíma. AFP

Körfuboltagoðsögnin Kobe Bryant lést í dag aðeins 41 árs að aldri. Var hann á meðal farþega í þyrlu sem hrapaði í Calabasas í Kaliforníu.

Bryant er einn besti körfuboltamaður allra tíma, en hann var fær á fleiri sviðum, því hann vann Óskarsverðlaun árið 2018. 

Bryant vann Óskarinn fyrir bestu stuttmyndina í flokki teiknimynda en myndin Dear Basketball var byggð á ljóði sem Bryant samdi um körfubolta, í kjölfar þess að hann lagði skóna á hilluna.

Bryant, sem leikstýrði myndinni, er fyrsti atvinnumaðurinn í íþróttum til að vinna Óskarsverðlaun.

Myndina má nálgast með því að smella hér

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert