Martin Hermannsson var áberandi í 98:82-sigri Alba Berlín á Crailsheim í þýsku A-deildinni í körfubolta í kvöld. Íslenski leikstjórnandinn var stigahæstur allra með 18 stig.
Staðan eftir fyrsta leikhlutann var 22:22, en Alba vann annan leikhluta 30:18 og var Crailsheim ekki líklegt til að jafna eftir það.
Martin lék í rúma 21 mínútu og ásamt stigunum 18 gaf hann fjórar stoðsendingar og tók tvö fráköst.
Alba er í þriðja sæti deildarinnar með 22 stig, átta stigum á eftir Bayern München sem er í toppsætinu. Alba á tvo leiki til góða.