Einn sá reyndasti á sjúkralistanum

Leifur Sigfinnur Garðarsson er á sjúkralistanum.
Leifur Sigfinnur Garðarsson er á sjúkralistanum. mbl.is/Hari

Einn reyndasti körfuboltadómari landsins, Leifur Garðarsson, dæmir að líkindum ekki meira á þessu keppnistímabili. 

Leifur greindi frá því á samfélagsmiðlum að leiktíðinni sé væntanlega lokið hjá sér vegna meiðsla. 

„Meiðsli hafa áhrif í lífi og leik jafnt líkamlega en ekki síður andlega. Á síðasta dómaratímabili meiddist ég illa í kálfa og var lengi frá. Nú glími ég við erfið meiðsli í nárafestum. Leiktíðinni er því lokið,“ skrifaði Leifur á Facebook. 

Leifur hefur langa reynslu sem dómari og hefur dæmt ófáa úrslitaleikina og bikarúrslitaleikina í gegnum árin. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert