Fjórir leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta vestanhafs í nótt. Óhætt er að segja að stórstjörnur deildarinnar hafi notið sín vel.
Giannis Antetokounmpo skoraði 34 stig og tók 17 fráköst fyrir Milwaukee Bucks í 120:108-útisigri á New Orleans Pelicans. Zion Williamson skoraði 20 stig fyrir New Orleans. Milwaukee er með bestan árangur allra liða og á toppi Austurdeildarinnar með 43 sigra og sjö töp.
James Harden var einu frákasti frá magnaðri þrefaldri tvennu. Skoraði hann 40 stig, tók níu fráköst og gaf tólf stoðsendingar í 125:110-sigri Houston Rockets á Charlotte Hornets á heimavelli.
Nikola Jokic var sömuleiðis afar nálægt þrefaldri tvennu. Serbinn skoraði 29 stig, tók 13 fráköst og gaf níu stoðsendingar í 127:99-heimasigri Denver Nuggets á Portland Trail Blazers.
Þá skoraði LeBron James 36 stig, tók sjö fráköst og gaf níu stoðsendingar fyrir Los Angeles Lakers í öruggum 129:102-sigri á San Antonio Spurs í Stapless Center. Lakers er á toppi Vesturdeildarinnar með 38 sigra og 11 töp.
Úrslit næturinnar í NBA-körfuboltanum:
New Orleans Pelicans - Milwaukee Bucks 108:120
Houston Rockets - Charlotte Hornets 125:110
Denver Nuggets - Portland Trail Blazers 127:99
Los Angeles Lakers - San Antonio Spurs 129:102