Martin kosinn bestur í úrslitaleiknum

Martin Hermannsson í leik með Alba Berlín.
Martin Hermannsson í leik með Alba Berlín. Ljósmynd/EuroLeague

Martin Hermannsson hefur verið kjörinn besti leikmaðurinn í bikarúrslitaleiknum í þýska körfuboltanum en hann var í lykilhlutverki þegar Alba Berlín lagði Oldenburg að velli í úrslitaleiknum á sunnudagskvöldið.

Þýska 1. deildin, BBL, birti þetta á Twitter fyrir stundu en Martin varð efstur í kosningu á heimasíðu deildarinnar. Martin var stigahæsti leikmaður Alba í úrslitaleiknum, skoraði 20 stig, og varð fyrstur Íslendinga til að vinna stóran titil í þýska körfuboltanum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert