Stigahæst í 75 stiga sigri

Sara Rún Hinriksdóttir var stigahæst í gríðarlega öruggum sigri.
Sara Rún Hinriksdóttir var stigahæst í gríðarlega öruggum sigri. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Leicester Riders vann vægast sagt öruggan 110:35-sigur á heimavelli gegn London Lions í efstu deild Bretlands í körfubolta í dag. 

Keflvíkingurinn Sara Rún Hinriksdóttir átti góðan leik fyrir Leicester og skoraði 19 stig, tók 3 fráköst og gaf eina stoðsendingu og var stigahæst í sínu liði. Sara fékk að hvíla sig þegar sigurinn var í höfn og spilaði hún í tæpar 22 mínútur í stað þeirra 30 sem hún spilar að meðaltali í leik. 

Íslenska landsliðskonan hefur skorað 16,2 stig, tekið 5,7 fráköst og gefið 1,7 stoðsendingu að meðaltali í leik á tímabilinu. Sara og stöllur eru í toppsæti deildarinnar með 20 stig eftir 12 leiki, eins og Newcastle Eagles. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert