Los Angeles Lakers styrkti stöðu sína á toppi Vesturdeildar NBA-deildarinnar í körfuknattleik í nótt þegar liðið vann öruggan útisigur gegn Golden State Warriors í San Francisco. Leiknum lauk með 116:86-sigri Los Angeles Lakers en jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og var staðan 54:52, Lakers í vil, í hálfleik.
Lakers vann hins vegar þriðja leikhluta með 40 stigum gegn 17 stigum Golden State og Golden State-mönnum tókst ekki að minnka muninn í fjórða leikhluta. Anthony Davis var stigahæstur Lakers-manna með 23 stig en LeBron James var hvíldur í leiknum og spilaði ekki mínútu. Lakers er á toppi Vesturdeildarinnar með 45 sigra, fimm sigrum meira en Denver Nuggets.
Úrslit næturinnar í NBA:
Philadelphia 76ers 115:106 New York Knicks
Indiana Pacers 106:100 Portland Trail Blazers
Oklahoma City Thunder 112:108 Sacramento Kings
Golden State Warriors 86:116 Los ANgeles Lakers