Búinn að ná fullum bata

Christian Wood er búinn að jafna sig.
Christian Wood er búinn að jafna sig. AFP

Christian Wood, leikmaður Detroit Pistons í NBA-deildinni í körfubolta, er búinn að ná fullum bata eftir að hafa smitast af kórónuveirunni. Umboðsmaðurinn hans staðfesti tíðindin við WZYZ-útvarpsstöðina. 

Wood varð þriðji leikmaður deildarinnar til að smitast á eftir þeim Donovan Mitchell og Rudy Gobert hjá Utah Jazz. Síðan þá hafa fleiri greinst með veiruna, m.a leikmenn Brooklyn Nets og Los Angeles Lakers. 

Ekkert er leikið í NBA-deildinni um þessar mundir vegna veirunnar, en vonir standa til að hún geti farið af stað af ný innan skamms og yrði þá fyrst um sinn leikið án áhorfenda. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert