Craig Pedersen, þjálfari karlalandsliðs Íslands í körfuknattleik, hefur bæst í hóp þeirra sem sýna æfingar sem koma iðkendum til góða við æfingar heima fyrir í samkomubanninu sem nú stendur yfir.
Á facebooksíðu KKÍ sýnir Pedersen í fimm mínútna myndskeiði æfingar sem hægt er að gera á litlu plássi heima hjá sér eða úti í garði:
Við hjá Árvakri viljum vekja athygli á því sem vel er gert á þessum erfiðu tímum. Ef þú ert með góða sögu af fyrirtækjum og einstaklingum sem eru að gera gott, sendu okkur ábendingu á netfangið stondumsaman@mbl.is.