Vestfirðingar styrkja sig

Gabriel Adersteg mun leika með Vestra í 1. deildinni á …
Gabriel Adersteg mun leika með Vestra í 1. deildinni á komandi leiktíð. Ljósmynd/Vestri

Körfuknattleikskappinn Gabriel Adersteg er genginn til liðs við Vestra en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Adersteg, sem er frá Svíþjóð, kemur til félagsins frá Snæfelli þar sem hann lék á síðustu leiktíð en hann skoraði 22 stig að meðaltali í 1. deildinni á síðustu leiktíð.

Áður en hann kom til Íslands lék hann meðal annars í ítölsku C-deildinni. „Gabriel er vinnusamur og fjölhæfur leikmaður sem getur leyst margar stöður á vellinum og er mikill liðsspilari,“ segir á heimasíðu Vestra.

Það er mikill fengur að þessum öfluga leikmanni og Körfuknattleiksdeild Vestra býður Gabriel velkominn til leiks og hlakkar til samstarfsins,“ segir enn fremur á heimasíðu félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert