Samstarf hjá Hamri og Þór

Hallgrímur Brynjólfsson.
Hallgrímur Brynjólfsson. mbl.is/Hari

Hamar frá Hveragerði og Þór frá Þorlákshöfn hafa ákveðið að sameina krafta sína og senda sameiginlegt lið til keppni í næstefstu deild kvenna á Íslandsmótinu í körfuknattleik á næsta keppnistímabili.

Hallgrímur Brynjólfsson hefur verið ráðinn til að stýra liðinu og gerði hann þriggja ára samning. Hann þjálfaði kvennalið Hamars á árunum 2012-2015 eins og fram kemur í tilkynningu frá félögunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert