Ármenningar með á nýjan leik

Sjö lið eru skráð til leiks í 1. deild kvenna …
Sjö lið eru skráð til leiks í 1. deild kvenna á komandi leiktíð. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ármann hefur ákveðið að senda lið til keppni í 1. deild kvenna í körfuknattleik á næstu leiktíð en það var Karfan.is sem greindi fyrst frá þessu. Ármann var síðast með lið í 1. deildinni árið 2018  en Karl H. Guðlaugsson mun stýra liðinu á komandi keppnistímabili. 

Frestur til þess að skrá lið til keppni rann út um mánaðarmótin maí/júní en Stjarnan og ÍR verða einnig með lið í 1. deildinni. Þá munu Hamar og Þór tefla fram sameiginlegu liði og því ljóst að sjö lið munu leika í 1. deild kvenna á næstu leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert