Fyrsti leikur Finns Freys verður gegn Stjörnunni

Finnur Freyr Stefánsson.
Finnur Freyr Stefánsson. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Körfuknattleikssamband Íslands hefur birt drög að leikjaniðurröðun fyrir næsta keppnistímabil í efstu deild karla og kvenna á Íslandsmótinu. 

Stefnt er að því að hefja leik í efstu deild kvenna hinn 23. september. Deildameistararnir í Val heimsækja Breiðablik í Smárann og tvö af sigursælustu kvennaliðum landsins, Keflavík og KR, eigast við. 

Efsta deild karla hefst hinn 1. október. Fyrsta verkefni Finns Freys Stefánssonar sem þjálfara Vals verður að taka á móti öflugu liði Stjörnunnar á Hlíðarenda. 

Fyrsti leikur Darra Freys Atlasonar með hið sigursæla lið KR verður á heimavelli gegn Njarðvík. 

Hildur Björg Kjartansdóttir verður komin í Valstreyjuna í haust.
Hildur Björg Kjartansdóttir verður komin í Valstreyjuna í haust. mbl.is/Hari
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert