Liðsstyrkur í Breiðholtið

Sigvaldi Eggertsson mun leika með ÍR á komandi keppnistímabili.
Sigvaldi Eggertsson mun leika með ÍR á komandi keppnistímabili. Ljósmynd/ÍR

Sigvaldi Eggertsson er genginn til liðs við ÍR og mun hann leika með liðinu í úrvalsdeild karla í körfuknattleik, Dominos-deildinni, á komandi leiktíð. Sigvaldi hefur leikið á Spáni, undanfarin tvö tímabil, en hann lék með Fjölni í 1. deildinni  tímabilið 2017-18 þar sem hann var stigahæsti Íslendingurinn í deildinni með 19 stig að meðaltali.

Þá hefur Aníka Linda Hjálmarsdóttir framlengt samning sinn við félagið en hún var framlagahæsti leikmaður liðsins á síðustu leiktíð í 1. deild kvenna. Hún skoraði 9 stig að meðaltali í leik á síðustu leiktíð, tók níu fráköst og gaf eina stoðsendinga.

Aníka Linda Hjálmarsdóttir verður áfram í Breiðholtinu.
Aníka Linda Hjálmarsdóttir verður áfram í Breiðholtinu. Ljósmynd/ÍR
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert