Ræddi mikið við Martin

Jón Axel Guðmundsson er á leiðinni til Þýskalands.
Jón Axel Guðmundsson er á leiðinni til Þýskalands. mbl.is/Kristinn Magnússon

Jón Axel Guðmundsson landsliðsmaður í körfuknattleik hefur samið við þýska félagið Fraport Skyliners frá Frankfurt til eins árs. Jón hefur leikið með háskólaliði Davidson í Bandaríkjunum undanfarin fjögur ár og vakið athygli víðsvegar um Evrópu fyrir glæsilega frammistöðu.

Jón ráðfærði sig við Martin Hermannsson áður en hann skrifaði undir við Fraport, en Martin hefur verið einn besti leikmaður þýsku deildarinnar undanfarin tvö ár með Alba Berlín, en hann samdi við Valencia á Spáni á dögunum.

„Það er nokkuð síðan félagið hafði fyrst samband við mig, ég var með nokkur tilboð á borðinu og ég var að skoða hvað myndi henta mér best. Staðsetningin heillar og svo talaði ég mikið við Martin og hann sagði mér að félagið kæmi mjög vel fram við leikmennina sína og að leikurinn sem þeir spila henta mér mjög vel,“ sagði Jón Axel í samtali við Morgunblaðið.

„Það voru nokkur félög í Þýskalandi, en svo líka Ítalíu, Frakklandi og öðrum góðum deildum. Stuttu eftir að ég samdi við Fraport hafði svo félag á Spáni samband við mig. Það má því segja að ég hafi heyrt frá félögum í öllum helstu deildum Evrópu. Það er mjög fínt á fyrsta ári,“ sagði hann enn fremur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert