Eistneskur leikmaður til Grindavíkur

Joonas Jarvelainen
Joonas Jarvelainen Ljósmynd/Grindavík

Körfuknattleiksdeild Grindavíkur hefur samið við Eistann Joonas Jarvelainen fyrir komandi keppnistímabil. Jarverlainen er 202 sentímetrar og getur leyst stöðu miðherja og framherja. 

Jarvelainen er þrítugur að aldri og á að baki nokkuð farsælan feril í heimalandi sínu og þá hefur hann einnig leikið í Bretlandi. Daníel Guðni Guðmundsson, þjálfari Grindavíkur, er ánægður með að hafa gengið frá samkomulagi við Jarvelainen.

„Hann býr yfir góðum sóknarhæfileikum og var til að mynda stigahæsti leikmaðurinn í efstu deildinni í Eistlandi á síðustu leiktíð. Hann hefur einmitt spilað lungað úr sínum ferli í Eistlandi en spilaði einnig tvö tímabil í Bretlandi með ágætum árangri.

Hópurinn er að verða nokkuð þéttur og hlökkum til að sjá hann á parketinu sem fyrst,“ er haft eftir Daníel Guðna í fréttatilkynningu félagsins. Leikmaðurinn lék með Tal Tech í eistnesku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og var með 18,35 stig að meðaltali í leik.

„Körfuknattleiksdeild Grindavíkur vill bjóða Joonas velkominn til félagsins og hlökkum við til að sjá hann í gulu og bláu í Röstinni í vetur!“ segir í fréttatilkynningu frá Grindavík. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert