Bandaríkjamaðurinn áfram í Breiðholti

Evan Singletary verður áfram í Breiðholti.
Evan Singletary verður áfram í Breiðholti. mbl.is/Kristinn Magnússon

Bandaríkjamaðurinn Evan Singlet­ary hefur framlengt samning sinn við Körfuknattleiksdeild ÍR til loka komandi tímabils. 

Singletary lék með ÍR síðasta vetur og skoraði 22 stig, tók 4 fráköst og gaf 7 stoðsendingar að meðaltali í leik og var í sjötta sæti yfir framlagshæstu leikmenn deildarinnar. 

Singletary lék í efstu deild Tékklands áður en leiðin lá í Breiðaholtið. ÍR var í sjöunda sæti Dominos-deildarinnar á síðustu leiktíð er keppni var aflýst vegna kórónuveirunnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert