Efnilegir leikmenn áfram hjá KR

Anna Fríða Ingvarsdóttir, Francisco Garcia þjálfari liðsins og Helena Haraldsdóttir, …
Anna Fríða Ingvarsdóttir, Francisco Garcia þjálfari liðsins og Helena Haraldsdóttir, eftir undirritun samninga í gær. Ljósmynd/KR

KR-ingar hafa endurnýjað samninga við tvær ungar og efnilegar körfuknattleikskonur en þær Anna Fríða Ingvarsdóttir og Helena Haraldsdóttir verða áfram innan raða Vesturbæinga á næstu leiktíð.

Helena er fædd árið 2003 og uppalin á Ísafirði þar sem hún spilaði með Vestra en hún lék með KR á síðustu leiktíð. Hún á landsleiki með U15 og U16 ára landsliðum Íslands. Anna Fríða er fædd árið 2005 og kemur úr röð yngri flokka KR. Hún var í afrekshópi U15 ára landsliðsins í vor.

KR var í öðru sæti Dominos-deildarinnar á síðustu leiktíð þegar mótinu var aflýst vegna kórónuveirunnar. Þá fór liðið alla leið í úrslit bikarkeppninnar þar sem það tapaði gegn Skallagrími í úrslitum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert