Fyrrverandi Íslandsmeistari í Grafarvoginn

Arianna Moorer í leik með Keflavík 2016.
Arianna Moorer í leik með Keflavík 2016. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Ariana Moorer mun leika með nýliðum Fjölnis í úrvalsdeild kvenna í körfuknattleik, Dominos-deildinni, á komandi keppnistímabili en þetta staðfesti félagið á samfélagsmiðlum sínum í dag.

Moorer spilaði með Keflavík, tímabilið 2016-17, en hún er 29 ára gamall bakvörður. Hún var lykilmaður í liðinu sem varð bæði bikar- og Íslandsmeistari.

Hún skoraði 17 stig að meðaltali fyrir Keflavík það tímabil, tók ellefu fráköst og gaf sex stoðsendingar í 28 leikjum.

Moorer er ætla að fylla skarðið sem Areil Hearn sem lék með liðinu í 1. deildinni á síðustu leiktíð en hún getur ekki leikið með liðinu í efstu deild vegna meiðsla sem hún varð fyrir á dögunum.

„Það er okkur mikil tilhlökkun að fá Ariana í Grafarvoginn á næstu dögum,“ segir í fréttatilkynningu sem félagið sendi frá sér..

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert