Dramatísk flautukarfa réði úrslitum (myndskeið)

Anthony Davis og LeBron James fagna sætum sigri.
Anthony Davis og LeBron James fagna sætum sigri. AFP

Los Angeles Lakers er komið í 2:0 í einvígi sínu gegn Denver Nuggets í úrslitum vesturdeildarinnar í NBA-körfuboltanum eftir dramatískan 105:103-sigur í öðrum leik liðanna í nótt. 

Lakers var með forystuna nánast allan tímann og var staðan í hálfleik 60:50, Lakers í vil. Lakers var áfram skrefinu á undan í þriðja leikhluta og var staðan fyrir fjórða og síðasta leikhlutann 82:78. 

Nikola Jokic hafði nokkuð hægt um sig hjá Denver, þangað til í fjórða leikhlutanum þegar Lakers réð lítið við Serbann sem skoraði tólf síðustu stig Denver. Kom hann Denver í 103:102 þegar 20 sekúndur voru til leiksloka. 

Virtist síðasta sókn Lakers vera að renna út í sandinn þegar Anthony Davis fékk boltann fyrir utan þriggja stiga línuna, Davis, sem skoraði tíu síðustu stig Lakers, gerði sér lítið fyrir og smellti boltanum beint ofan í körfuna í þann mund sem lokaflautið gall og þar við sat. 

Liðið sem er fyrri til að vinna fjóra leiki mætir annaðhvort Miami Heat eða Boston Celtics í lokaúrslitum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert