Meistaraefnin í vænlegri stöðu

LeBron James og Anthony Davis fóru fyrir sínu liði í …
LeBron James og Anthony Davis fóru fyrir sínu liði í nótt. AFP

LeBron James var ansi nálgæt þrefaldri tvennu þegar lið hans Los Angeles Lakers vann 114:108-sigur gegn Denver Nuggets í fjórða leik liðanna í úrslitum Vesturdeildar NBA-deildarinnar í körfuknattleik í Disney World í Orlando í nótt.

LeBron skoraði 26 stig, tók níu fráköst og gaf átta stoðsendingar en Anthony Davis var stigahæstur í liði Lakers með 34 stig.

Lakers-menn tóku forystuna strax í fyrsta leikhluta og leiddu 37:30 að honum loknum. Denver tókst að brúa bilið hægt og rólega þótt Lakers hafi alltaf verið með frumkvæðið í leiknum.

Þegar fimm mínútur voru til leiksloka leiddi Lakers með þremur stigum, 108:105 og fengu Denver menn nokkur tækifæri til þess að jafna metin en niður vildi boltinn ekki.

Liðin mætast í fimmta leik sínum á laugardaginn kemur og þá getur Lakers tryggt sér sæti í úrslitum NBA-deildarinnar í fyrsta sinn í tíu ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert