Haukur drjúgur í naumu tapi

Haukur Helgi Pálsson í landsleik.
Haukur Helgi Pálsson í landsleik. mbl.is/Hari

Hauk­ur Helgi Páls­son átti fínan leik fyrir Andorra sem tapaði naumlega á heimavelli gegn Unicaja Málaga í spænsku A-deildinni í körfuknattleik í dag, 81:78.

Haukur spilaði í 17 mínútur fyrir Andorra í leiknum, skoraði þrettán stig, gaf fimm stoðsendingar og tók eitt frákast á þeim tíma. Andorra var 46:44-yfir eftir þriðja leikhluta en tókst þó ekki að landa sigri. Andorra hefur nú spilað þrjá leiki á tímabilinu og unnið einn þeirra, gegn Murcia í fyrstu umferðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert