Lið Keflavíkur í sóttkví

Frá leik KR og Keflavíkur á síðasta tímabili.
Frá leik KR og Keflavíkur á síðasta tímabili. mbl.is/Kristinn Magnússon

Mótanefnd KKÍ hefur frestað leik Keflavíkur og Snæfells í Dominos deild kvenna sem sem fara átti fram á laugardaginn.

Fram kemur í tilkynningu frá KKÍ að ástæðan sé sú að leikmannahópur Keflavíkur sé í sóttkví fram yfir settan leikdag.

Leiknum hefur ekki verið fundinn nýr leiktími en ekki hefur verið tekin frekari ákvörðun um næstu leiki Keflavíkur sem fara eiga fram 7. og 14. október. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert