Stórveldaslagur í Vesturbænum

Kristófer Acox og Ólafur Helgi Jónsson eigast við í leik …
Kristófer Acox og Ólafur Helgi Jónsson eigast við í leik KR og Njarðvíkur á síðustu leiktíð. mbl.is/Kristinn Magnússon

Gömlu stórveldin KR og Njarðvík mætast í fyrstu umferð úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik, Dominos-deildarinnar, en fyrstu fjórir leikir tímabilsins fara fram í kvöld.

Liðin mætast í Vesturbænum klukkan 20.15. Bæði lið koma mikið breytt til leiks og eru m.a. þrír nýir útlendingar á mála hjá hvoru þeirra.

Deildin hefst á Egilsstöðum þar sem nýliðar Hattar taka á móti Grindavík kl. 18.30 en einnig er leikið á Sauðárkróki (Tindastóll og ÍR) og í Þorlákshöfn (Þór og Haukar) í kvöld.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert