Gamla ljósmyndin: Flottur í tauinu

Morgunblaðið/Einar Falur Ingólfsson

Íþrótta­deild Morg­un­blaðsins og mbl.is held­ur áfram að gramsa í mynda­safni Morg­un­blaðsins og birta á mbl.is á laug­ar­dög­um. 

Mikla athygli vakti þegar Njarðvík varð Íslandsmeistari í körfuknattleik árið 1991 með þjálfara sem var aðeins 22 ára gamall. Þótt lið Njarðvíkur hafi verið sigursælt áratuginn á undan og miklar væntingar gerðar til liðsins fékk Friðrik engu að síður tækifæri til að taka við liðinu sumarið áður. Samkvæmt lista sem tekinn var saman fyrir KKÍ yfir þjálfara í efstu deild karla er Friðrik sá yngsti sem tekið hefur við liði í deildinni.

Ekki virðist starfið hafa vaxið Friðriki í augum því Njarðvík vann 21 leik í deildinni tímabilið 1990-1991 en tapaði fimm. Friðrik sagði þó í samtali við Morgunblaðið 12. apríl 1991 að starfið hefði tekið á taugarnar: „Ég fann það í úrslitakeppninni hvað þetta getur verið erfitt og álagið mikið. Síðustu dagar hafa verið ótrúlegir og á tímabili var ég að fara yfir um,“ er haft eftir Friðriki.

Fleira vakti athygli íþróttaunnenda því Friðrik þótti afar snyrtilega til fara á hliðarlínunni þegar Njarðvíkurliðið keppti. Var gjarnan í jakkafötum, í skyrtu og með bindi. Telja margir að þarna hafi áhrif frá Bandaríkjunum náð til Íslands því körfuboltaþjálfarar þar vestra eru gjarnan snyrtilega klæddir í leikjum. Ef til vill var Friðrik undir „rælískum áhrifum“ en hárgreiðsla og klæðaburður Njarðvíkingsins minnti nokkuð á Pat Riley sem gert hafði garðinn frægan sem þjálfari Los Angeles Lakers. 

Á myndinni rífur Friðrik Íslandsbikarinn á loft með tilþrifum í Ljónagryfjunni í Njarðvík fimmtudagskvöldið 11. apríl 1991 eftir mikla úrslitarimmu við nágrannana í Keflavík. 

Myndina tók Einar Falur Ingólfsson sem starfað hefur fyrir Morgunblaðið og mbl.is árum saman sem ljósmyndari og blaðamaður. Tveir leikmenn liðsins sjást á myndinni. Vinstra megin er það Gunnar Örlygsson og hægra megin Kristinn Einarsson. 

Friðrik Ingi starfar í dag hjá uppeldisfélaginu sem þjálfari en hefur víða komið við síðan 1991. Var um tíma landsliðsþjálfari karla og framdvæmdastjóri KKÍ í mörg ár svo eitthvað sé nefnt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert