Haukur sterkur í Evrópusigri

Haukur Helgi Pálsson var sterkur í dag.
Haukur Helgi Pálsson var sterkur í dag. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Andorra hafði betur gegn Lietkabelis í Evrópubikarnum í körfubolta í kvöld, 76:66. Landsliðsmaðurinn Haukur Helgi Pálsson átti góðan leik fyrir Andorra. 

Haukur skoraði níu stig, tók sjö fráköst og stal tveimur boltum á rúmlega 21 mínútu. Var hann alls með 16 framlagspunkta, næstflesta hjá Andorra. 

Liðið er í fjórða sæti af sex liðum í C-riðli með tvo sigra og þrjú töp eftir fimm fyrstu leikina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert