Þjálfarar skora á yfirvöld

Arnar Guðjónsson, þjálfari Stjörnunnar.
Arnar Guðjónsson, þjálfari Stjörnunnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þjálfarar í efstu deild karla og kvenna í körfuknattleik hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem þeir skora á yfirvöld að leyfa æfingar afreksíþróttafólks.

Ekkert hefur verið spilað á Íslandsmótinu í körfubolta síðan 6. október og ekki stendur til að leyfa æfingar íþróttaliða með breytingum á sóttvarnaaðgerðum sem taka gildi 18. nóvember.

Í yfirlýsingunni biðla þjálfararnir til stjórnvalda um að leyfa æfingar hjá liðum í efstu deildum frá og með næsta miðvikudegi að uppfylltum þeim sóttvarnareglum sem körfuknattleiks- og handboltasamböndin settu sér í október. Yfirlýsinguna má lesa í heild hér að neðan.

Yfirlýsing þjálfara í Dominos-deildum karla og kvenna í körfubolta:

Til þeirra er málið varðar,

fátt ef nokkuð hefur haft jafn mikil áhrif á daglegt líf á undanförnum áratugum og kórónuveiran. Flest öll samfélög í heiminum hafa þurft að glíma við miklar afleiðingar, hvort sem um er að ræða heilsufarslegar, félagslegar eða fjárhagslegar. Íþróttir eru þar engin undantekning, enda hefur íþróttastarf víðs vegar verið ýmist lagt niður eða þurft að laga sig að ástandinu með ýmsum fórnarkostnaði. Körfuboltahreyfingin á Íslandi hefur tekið heilshugar þátt í baráttunni gegn veirunni og fylgt öllum reglum með því að stöðva sitt starf þegar mesta hættan hefur staðið yfir.

Í ljósi nýjustu frétta af breytingum á reglugerðum um sóttvarnaraðgerðir sem eiga að taka gildi næstkomandi miðvikudag, 18. nóvember, erum við hins vegar orðin ansi hugsi. Sú hugsun er að ef til vill sé skilningur sóttvarnarlæknis og stjórnvalda á körfuboltaiðkun, þá sér í lagi efstu deild karla og kvenna, ekki nægilega mikill. Markmið þessa bréfs er því að varpa ljósi á þætti körfuboltans sem kynnu að breyta afstöðu til sóttvarnaraðgerða.

Við viljum beina athyglinni að atvinnuvæðingu körfuboltans og að regluverk er til staðar sem unnið hefur verið af sérsamböndunum vegna framkvæmda á æfingum.

Okkur finnst það undarlegt að nánast öll íþróttahreyfingin sé sett undir sama hatt, hvort sem er um að ræða afreksíþróttafólk í frjálsum íþróttum, atvinnumenn í boltagreinum eða fólk sem stundar íþróttir til heilsuræktar eða af áhugamennsku.

Á undanförnum tveimur áratugum hefur fjöldi atvinnuleikmanna og þjálfara í félögum aukist til muna. Þá hefur æfingamagn aukist mikið og fleiri hafa æft íþróttina líkt og atvinnumenn, þó fjárhagsleg umbun liggi ekki alltaf að baki. Íþróttin er atvinna þeirra og framtíð, sem þeir geta ekki unnið við í dag. Þá hafa verið fluttir inn erlendir leikmenn til landsins sem sérfræðingar í íþróttinni. Þessir íþróttamenn, bæði innlendir og erlendir, æfa núorðið allt árið um kring og löng stopp sem þessi geta haft alvarlegar afleiðingar á frammistöðu þeirra í íþróttinni og þ. a. l. atvinnumöguleika á komandi mánuðum og jafnvel árum.

Við þjálfarar í efstu deildum (Dominosdeildum) karla og kvenna skorum á stjórnvöld að endurskoða sína afstöðu gagnvart körfuboltanum. Við teljum að það algjöra æfingabann á afreks- og atvinnumannahluta körfuboltans sem nú er við líði geti haft alvarlegar langtímaafleiðingar á íþróttamennina. Þá þarf ekki að fjölyrða um mikilvægi afreksíþrótta og áhrifa þeirra á samfélagið, hvort sem um er að ræða glæsta sigra eða sár töp. Loks má ætla að á þessum síðustu tímum geti körfuboltinn verið kærkomin afþreying í sjónvarpi á virkum dögum fyrir almenning, líkt og tónlistarmenn þjóðarinnar hafa sýnt að lifandi tónlist í sjónvarpi getur verið um helgar.

Nú þegar er til regluverk um framkvæmd á æfingum og leikjum sem samþykkt var af yfirvöldum, en það var unnið af Körfuknattleikssambandi Íslands og Handknattleikssambandi Íslands og gefið út 19. október síðastliðinn.

Þar að auki setti Knattspyrnufélagið Valur saman regluverk vegna undirbúnings og æfinga vegna þátttöku Vals í Evrópukeppni í knattspyrnu kvenna sem einnig var samþykkt af yfirvöldum. Það regluverk mætti einnig nýta við framkvæmd æfinga í körfubolta.

Við erum tilbúin að mæta öllum þeim kröfum sem þykja nauðsynlegar til að æfingar geti farið fram, s.s. að skima liðin áður en fyrstu æfingar hefjast og hitamæla þjálfara og leikmenn þegar þeir mæta á æfingastað. Auk þess eru þjálfarar og leikmenn reiðubúnir að haga lífi sínu á þann hátt utan vallar að smithætta sé í algjöru lágmarki, líkt og framlínufólk hefur þurft að gera.

Við leggjum til að æfingar í efstu deild (Dominosdeild) karla og kvenna í körfubolta hefjist að fullu miðvikudaginn 18. nóvember nk., að uppfylltum sóttvarnareglum sem settar voru á sínum tíma á lið utan höfuðborgarsvæðisins, sbr regluverk KKÍ og HSÍ frá 19. október.

Til vara gætum við sæst á eftirfarandi sviðsmynd:

1) Vika 1, 18.-22. nóvember
Æfingahóp hvers liðs er skipt í tvennt þannig að hámarki eru 10 manns inni í íþróttasalnum í einu (æfingahópar körfuboltaliða eru um 15 manns). Þessir æfingahópar haldast sér og blandast ekki á milli æfinga. Auk þess yrðu æfingum hagað á þann hátt að leikmenn haldi tveggja metra fjarlægð og hver leikmaður með sinn æfingabúnað.

2) Vika 2, 23.-29. nóvember
Sömu æfingahópar eru saman en nú er snerting leyfð.

3) Vika 3, 30. nóvember-6. desember
Æfingahópurinn má koma allur saman.

Með von um jákvæð viðbrögð.

Virðingarfyllst,
Þjálfarar liða í Dominosdeildum karla og kvenna í körfubolta

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert