Davis gerði langtímasamning

LeBron James og Anthony Davis fagna NBA-meistaratitlinum í október síðastliðnum.
LeBron James og Anthony Davis fagna NBA-meistaratitlinum í október síðastliðnum. AFP

Anthony Davis, miðherji NBA-meistara LA Lakers í körfuknattleik, hefur gert nýjan risasamning við liðið. Davis, sem er 27 ára, gerði samning til fimm ára sem færir honum allt að 24 milljarða króna í laun á samningstímanum.

Davis kom til Lakers frá New Orleans Pelicans fyrir síðasta leiktímabil. Hann vann sinn fyrsta NBA-meistaratitil á ferlinum á sínu fyrsta tímabili með Lakers, þegar liðið vann Miami Heat 4:2 í sex leikja seríu.

Í gær var tilkynnt um að LeBron James hafi sömuleiðis gert nýjan samning við Lakers. Meisturunum hefur því tekist að halda tveimur helstu lykilmönnum sínum innan sinna raða fyrir komandi tímabil, sem hefst rétt fyrir jól.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert