Stigahæst í stórsigri

Sara Rún Hinriksdóttir átti góðan leik í dag.
Sara Rún Hinriksdóttir átti góðan leik í dag. Ljósmynd/FIBA

Landsliðskonan Sara Rún Hinriksdóttir átti góðan leik fyrir Leicester Riders er liðið vann 91:61-stórsigur á skoska liðinu Caledonia Pride í bresku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag.

Keflvíkingurinn skoraði 19 stig, tók fimm fráköst og gaf fjórar stoðsendingar á rúmlega 24 mínútum. Ásamt því að vera stigahæst var Sara í þriðja sæti yfir fjölda stoðsendinga hjá Leicester.

Leicester hefur unnið báða leiki sína í deildinni til þessa, en lítið hefur verið spilað vegna frestana til þessa vegna kórónuveirunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert